Fréttir

Góðir Íslendingar fá frábæra dóma gagnrýnenda

Þjóðin tilbúin til að hlusta!

25.1.2010

Godir_Islendingar-13Það voru slegnir leikhúsgestir  en gríðarlega ánægðir sem stóðu upp úr sætum sínum á Nýja sviðinu á föstudagskvöldið að lokinni frumsýningu á Góðir Íslendingar. Sýningin hitti algerlega í mark og eru gagnrýnendur á einu máli um gæði sýningarinnar og þörf þess að sjá pólitískt leikhús hér á landi. „Þetta er magnaður hópur sem saman getur gert hvað sem vera skal enda er sýningin frábær.“  Segir Silja Aðalsteinsdóttir í TMM og gagnrýnandi Morgunblaðsins gefur verkinu 4 og ½ stjörnu í sínum dóm. Bryndís Schram segir í dóm sínum á pressan.is  að þrátt fyrir vonleysið í þjóðfélaginu sem verkið speglar vel þá sé von meðan við eigum svona gott leikhúsfólk sem „ hikar ekki við að stinga á kýlum samtímast og ungir leikarar koma boðskapnum til skila, gagnteknir leikgleði, er ástæðulaust að örvænta. Þá er enn von.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica