Fréttir

Gauragangur - nýtt lag með Nýdönsk, Vertu með

Sjóðheitt lag í spilun í dag

2.2.2010

Vertu með er nýtt lag eftir Jón Ólafsson við texta Ólafs Hauks Símonarsonar í flutningi hljómsveitarinnar Nýdönsk. Lagið er samið fyrir uppsetningu Borgarleikhússins á leikriti Ólafs, Gauragangi sem frumsýnt verður 19. mars. Nýdönsk samdi tónlistina við verkið þegar það var sett upp í fyrsta sinn árið 1993 og bera þeir félagar sterkar tilfinningar til leikverksins. Fyrir uppsetningu Borgarleikhússins hafa þeir yfirfarið útsetningar og samið nýtt lag, Vertu með.  
Mörg þekkt lög eru í Gauragangi og má þar nefna Ský í buxum, Margur verður af aurum api og Er hann sá rétti. Væntanlegur er geisladiskur með lögunum úr leikritinu í byrjun mars í útgáfu 12 tóna.  Meðal flytjenda eru Guðjón Davíð Karlsson, Valgerður Guðnadóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Jóhann Sigurðarson, Sveppi, Örn Árnason, Bergur Þór Ingólfsson og fleiri.


Hluta á lagið



Þetta vefsvæði byggir á Eplica