Fréttir

Skoppa og Skrítla á tímaflakki frumsýnt á morgun

Nýtt íslensk barnaleikrit, frumsýnt á Litla sviðinu

5.2.2010

Skoppa og Skrítla á tímaflakkiNýtt íslenskt barnaleikriti, Skoppa og Skrítla á tímaflakki, verður frumsýnt á morgun laugardag á Litla sviðinu. Þetta er þriðja leikrit þeirra vinkvenna sem fer á leiksvið og sú stærsta til þessa. Fram koma ásamt þeim Skoppu og Skrítlu, Bakari Svakari, góð vinkona þeirra Lúsí og þrjú börn sem hjálpa þeim að leysa stóru þrautina í sögunni.  
Í þessu leikriti fá þær Skoppa og Skrítla senda ósk í óskabrunninn sinn frá Bakara Svakara sem vantar hjálp að ráða fjársjóðsgátu. Eins og sannir vinir gera þá bregðast þær við og með hjálp Lúsíar og leikhústöfranna þá leggja þær af stað í mikið tímaferðalag með viðkomu í fortíð nútíð og framtíð. Þetta er ævintýri um hugmyndaflug, hugrekki, góða siði og umfram allt vináttu. Sýning sem öll fjölskyldan ætti að hafa stórgaman af.

Með helstu hlutverk fara Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Viktor Már Bjarnason og Vigdís Gunnarsdóttir. Þrjú börn taka einnig þátt í sýningunni.

Hallur Ingólfsson semur tónlist, Þórdís Jóhannesdóttir  og Katrín Þorvaldsdóttir hanna leikmynd. Una Stígsdóttir og Katrín Þorvaldsdóttir gera búninga og leikstjóri er að þessu sinni Gunnar Helgason. Handrit er eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur. Uppsetningin er samstarfsverkefni Skrítlu ehf og Borgarleikhússins.

Sýningin er rétt rúmur klukkutími að lengd. Miðaverð er aðeins kr. 1950.-.

Söngur, dans og leikhústöfrar sem kæta og bæta alla fjölskylduna.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica