Fréttir
London

Leikhúsferð til London 15. - 18.apríl

Leikhúsferð til London í samvinnu við Expressferðir

9.2.2010

Leikhúsferðirnar til London í samvinnu Borgarleikhússins og Expressferða hafa notið ómældra vinsælda og ánægju þeirra sem hafa tekið þátt í þeim. Nú hefur verið ákveðið að fagna vorkomu í heimsborginni London með því að bjóða upp á spennandi leikhúsferð, þar sem áhugaverð og skemmtileg verk á fjölum leikhúsa borgarinnar eru sérvalin af fagmönnum Borgarleikhússins.
Sérlegur leiðsögumaður verður Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri sem segir farþegum frá leiksýningunum fyrir sýningar.

15. apríl.  Fimmtudagur. 
Flogið til London kl. 7:15.  Farþegum ekið á Park Plaza Westminster Bridge, sem er glænýtt 4* hótel með morgunverði og er staðsett á besta stað í borginni.  Síðan er leiksýningin Enron í boði sem er sýnt í Nowel Coward leikhúsinu St. Martins Lane og sýningin hefst kl. 19:30. Þessi heillandi leiksýning hefur hlotið fádæma lof gagnrýnenda. Ein glæsilegasta og áhrifamesta sýning síðustu missera sem varpar mögnuðu ljósi á atburði síðustu ára í svokölluðum fjármálaheimi. Að lokinni sýningu fer hópurinn saman út að borða.

16. apríl. Föstudagur.
Boðið upp á skoðunarferð um borgina með íslenskri leiðsögn. Skoðunarferðin tekur 3 klukkustundir og er mjög áhugaverð og sýnir farþegum nýtt sjónarhorn á London. Verðið er 25 pund og greiðist hjá fararstjóra.
Um kvöldið er farið á stórskemmtilegt leikrit Jerusalem í Appolo – leikhúsinu á Shaftesbury Avenue og hefst sýningin kl. 19:30. Þetta er gamansöm og létt sýning um daglegt líf í fallegu landi, um nautnamann og eyðslukló sem bæjayfirvöld vilja bera út úr íbúð sinni. Börnin heimta að hann fari með þau í skemmtiferð og mislitur vinahópur vill sinn skerf af ríflegum birgðum af áfengi og eiturlyfjum.

17. apríl Laugardagur.
Frjáls dagur en um kvöldið er upplagt að sjá hinn vinsæla söngleik Billy Elliott í Victoria Palace á Victoria Street kl. 19:30. Fjallar um móðurlausan dreng og faðir hans vill að verði boxari en í stað þess fær drengurinn mikla ást á ballett. 

18. apríl.  Sunnudagur. 
Brottför út á flugvöll kl. 16:00 og brottför til Íslands kl 20:30.

 ATH. korthafar áskriftakorta Borgarleikhússins fá 5.000.- kr. afslátt á ferðinni.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að láta Expressferðir vita hvaða leiksýningar þeir vilja sjá og mun ferðaskrifstofan panta miða. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri mælir sérstaklega með Enron sýningunni. Ath. að ekki er hægt að bóka sig á netsíðu Expressferða nema á kr. 88.700 og fá kortagestir því endurgreitt 5000.- krónur þegar þeir láta okkur vita.  lilja@expressferdir.is asa@expressferdir.is  ingadora@expressferdir.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica