Leikhússtjóri hlýtur Íslensku þekkingarverðlaunin
Leikhússtjóri Borgarleikhússins þykir hafa skarað fram úr á árinu að mati dómnefnar FVH
Íslensku þekkingarverðlaunin 2010 voru afhent við hátíðlega athöfn í dag. Verðlaunin eru veitt einu fyrirtæki og einum einstaklingi sem þótt hefur skara fram úr á ári hverju. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins hlaut viðurkenningu sem stjórnandi ársins. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica.
Þekkingarverðlaunin eru afhent nú í tíunda sinn en auk Magnúsar hlutu Fjarðarkaup viðurkenningu sem fyrirtæki ársins, hin fyrirtækin sem tilnefnd voru voru Össur, Icelandair og CCP.
Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: "Magnús Geir hefur náð á eftirtektarverðan máta að tengja saman viðskipti, menningu og listir og hann hefur náð bæði faglegum og rekstrarlegum árangri með leikhúsin sem hann hefur stýrt. Hann er mikill frumkvöðull á sínu sviði og óumdeildur sem slíkur. Magnús hefur sýnt og sannað að í honum býr mikill leiðtogi því bæði starfsandi jafnt sem aðsókn hafa náð mikilli siglingu undir hans stjórn."
Magnús sagðist líta á verðlaunin sem viðurkenningu til alls starfsfólks Borgarleikhússins og að helsti styrkur leikhússins væri einstaklega sterkur og samhentur starfsmannahópur. Magnús sagði verðlaunin vera hvatningu til starfsfólks leikhússins um að halda áfram á sömu braut.
