Fjölskyldan víkur fyrir troðfullu húsi
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar snýr sýningin aftur næsta leikár
Fjölskyldan – ágúst í Osages sýslu eftir Tracy Letts sem frumsýnd var 30. október sl. víkur af Stóra sviði Borgarleikhússins fyrir fullu húsi en uppselt er á allar sýningar út leikárið. Fjölskyldan fékk afbragðs viðtökur gagnrýnenda og leikhúsgesta og hefur verið sýnd í fimm mánuði fyrir fullu húsi. Bætt hefur verið við fjölda aukasýninga á verkinu en nú er svo komið að ekki væri hægt að bæta við fleiri aukasýningum án þess að sýningaráætlun leikársins riðlaðist. Borgarleikhúsinu er mikið í mun að standa við loforð sín gagnvart kortagestum og öðrum sem hlakka til nýrra uppsetninga. Af þeim sökum víkur sýningin nú en kemur aftur á fjalirnar í takmarkaðan tíma næsta haust og verður þá hægt að tryggja sér miða í gegnum áskriftarkortin vinsælu.
Næsta frumsýning á Stóra sviðinu er Gauragangur eftir Ólaf Hauk sem frumsýndur verður 19. mars en forsala hefst innan skamms. Faust nýtur mikilla vinsælda, uppselt er á verkið út mars en nýjar aukasýningar í mars og apríl hafa verið settar í sölu.
„Það má segja að það sé ánægjulegt vandamál sem við í Borgarleikhúsinu stöndum frammi fyrir. Allar sýningarnar hafa gengið vonum framar og því hefur verið mikil keyrsla á sviðum og starfsfólki hússins. Þó ljóst sé að auðveldlega væri hægt að sýna tugi fleiri sýninga á Fjölskyldunni nú, þá ákváðum við að hætta sýningum í bili til að koma öðrum sýningum leikársins að. Ástæðan er einfaldlega sú að við viljum standa við það verkefnaval sem við höfum kynnt kortagestum okkar og öðrum. En þeim sem ekki tókst að næla sér í miða þetta leikárið geta verið rólegir því við höfum ákveðið að taka verkið upp aftur á næsta haust. Við erum afar þakklát fyrir þeim áhuga sem leikhúsgestir hafa sýnt verkefnum leikársins.“ Segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri.
Gagnrýnendur hafa kallað Fjölskylduna fyrstu klassík 21. aldarinnar og ef marka má viðtöku leikhúsgesta þá trúum við því. Verkið hlaut m.a. hin virtu Pulitzerverðlaun, Drama Desk – og Tony verðlaun en verkið minnir í senn á dramatísk leikverk Tennessee Williams og kaldhæðni Woody Allen. Ástir, átök, leyndarmál og skrautleg fortíð gerir Fjölskylduna margvítt, fyndið og átakanlegt en fyrst og fremst stórbrotið leikrit. Hilmir Snær Guðnason leikstýrði verkinu. Leikhópurinn í heild sinni hefur hlotið mikið lof en þær Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir eru í burðarhlutverkum.
