Bláa gullið kveður Litla sviðið eftir skemmtilegar skólasýningar
4. og 5. bekkingar skemmtu sér vel í leikhúsinu
Leikritið Bláa gullið kveðjur nú eftir viku törn þar sem verkið var sýnt fyrir alla 4. og 5. bekkinga á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og Borgarbyggð. Það var Orkuveita Reykjavíkur sem bauð krökkunum í leikhúsið og var boðið loka hnykkurinn í afmælisfögnuði Vatnsveitunnar í Reykjavík sem hélt upp á 90 ára afmæli sitt árið 2009. Leikritið Bláa gullið fjallar um vatnið og hlutverk þess fyrir líf jarðar.
Það var glatt á hjalla þegar síðustu bekkirnir komu í leikhúsið í gær og lauk þar með sjö daga sýningartörn hjá leikurunum sem hafa sýnt tvær sýningar á dag svo allir kæmust að.
