Fréttir

Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings um Jóhann Sigurjónsson

Jóhann Sigurjónsson leikskáld – sígildur eða ekki?

18.2.2010

Jóhann Sigurjónsson

Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings í Borgarleikhúsinu laugardaginn 20. febrúar og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu með leiklestri á leikriti Jóhanns Rung læknir sem gefið var út í Danmörku 1905. Sveinn Einarsson leikstýrir þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Jakobi Þór Einarssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur.
Umræðuefni málþingsins, sem hefst að leiklestri loknum,  er Jóhann Sigurjónsson, leikskáld, og erindi hans við nútímann.
Dagskrá málþingsins hefst á sögulegu yfirliti um ævi og störf Jóhanns sem Jón Viðar Jónsson hefur tekið saman. Síðan kynnir Fern Nevjinsky inntak doktorsritgerðar sinnar, Þrá og ástríða í verkum Jóhanns Sigurjónssonar og andmælandi hennar Sveinn Yngi Egilsson, bókmenntafræðingur ræðir um ritgerðina. Gunnar Eyjólfsson, leikari, ræðir um glímuna við Loft og Jón Atli Jónasson, leikskáld, talar um leikskáldið og hvernig það kemur starfandi leikskáldi fyrir sjónir. 
Að lokum verða pallborðsumræður þar sem Dagný Kristjánsdóttir, prófessor, Hrafnhildur Hagalín, leikskáld, Páll Baldvin Baldvinsson, leikhúsfræðingur og Sveinn Einarsson fyrrv. leikhússtjóri og leikstjóri taka þátt. Stjórnandi pallborðsins er Fríða Björk Ingvarsdóttir, bókmenntafræðingur.
Allir eru velkomnir
– Í hléi verður boðið upp á súpu og brauð í forsal leikhússins.





Útlit síðu:

Tungumál



Gauragangur

Orðheppnasti unglingur Íslands

Gauragangur-450x236-new-Vignetta
 

Enron

Heitasta leikritið í heiminum í dag

Enron_450x236
 

Harry & Heimir

Enn veltast áhorfendur um af hlátri

Harry og Heimir
 

Horn á höfði

Barnasýning ársins 2010

Horn á höfði
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica