Fréttir

Góðum Íslendingum boðið á eina virtustu leiklistarhátíð Evrópu

Leiklistarhátíðin í Wiesbaden einbeitir sér að nýjum krefjandi leikverkum

22.2.2010

Godir_Islendingar-02Leikritinu Góðir Íslendingar hefur verið boðið á leiklistarhátíðina Ný leikrit frá Evrópu (Neue Stücke aus Europa). Það er mikill heiður fyrir Borgarleikhúsið að fá boð á þessa hátíð og þarna hafa fjöldi leikskálda verið kynntir í fyrsta sinn utan heimalands síns. Hafa sumir hverjir hlotið heimsfrægð enda kemur þarna saman fjöldi leikhúsfólk auk útsendara leiklistarhátíða og umboðsmanna víða að úr heiminum. Góðir Íslendingar hlutu mikið lof gagnrýnenda þegar sýningin var frumsýnd í janúar, síðasta sýning hérlendis er föstudaginn 26.febrúar. 
 

Góðir Íslendingar

Góðir Íslendingar er nýtt íslensk leikverk eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Pál Eyjólfsson og Jón Atla Jónasson. Verkið er hárbeitt ádeilda á íslenskt samfélag og hvernig við glímum við afleiðingar efnahagshrunsins sem á okkur dundi. Í Góðir Íslendingar er verið að skoða sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar sem birtist m.a. í húsunum sem við byggðum og bílunum sem við keyptum en einnig í því hvernig við komum fram og tjáum okkur á veraldarvefnum og í lífinu yfirleitt. Við erum öll undir smásjánni í verkinu, það sem áður þótti merki um velgengni vekur nú óhug okkar.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica