Fréttir

Gauragangur - forsala hefst á morgun kl 10

Símalínurnar þegar byrjaðar að glóa í miðasölunni

24.2.2010

Það er mikil stemning í Borgarleikhúsinu þessa vikuna og mikill Gauragangur. Símalínurnar eru farnar að glóa í miðasölunni og mikill spenningur fyrir forsölunni sem hefst á morgun kl. 10. Gauragangur eftur Ólaf Hauk Símonarson var fyrst sett upp fyrir 19 árum síðan og því margir búnir að bíða lengi eftir að sjá verkið á sviði. Leikritið er þroskasaga Orms Óðinssonar, sem finnst heimurinn engan veginn tilbúinn að taka á móti snillingi eins og honum. Fimmtán lög eru í sýningunni og er tónlistin eftir hljómsveitina Nýdönsk. Tónlistin kemur út á geisladisk í byrjun mars og með fyrstu 1000 seldum miðum í forsölu fylgir ávísun á Gauragangs geisladiskinn. Þeir heppnu sem ná sér í geisladisk, geta því sótt sér sjóðheitan geisladisk til okkar í miðasöluna og byrjað að hita upp fyrir sýninguna um leið og hann kemur út.  Gauragangur er settur upp í samvinnu við Símann og fá viðskiptavinir Símans 1200 kr. afslátt af hverjum keyptum miða  á fyrstu 15 sýningarnar.

 

En ekki láta þér leiðast biðin og spilaðu Orm til að stytta þér stundir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica