Gríðarleg sala í fyrsta degi forsölu á Gauragang
Mikið álag á símkerfið og er fólk beðið um að sýna þolinmæði
Forsala á Gauragang hófst klukkan 10 í morgun og óhætt að segja að símkerfi miðasölunnar sé undir miklu álagi. Mikið hringt strax klukkan 10 þegar opnaði og ljóst að mikil eftirvænting er eftir sýningunni. Viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir um að sýna miðasölunni þolinmæði því mikið er hringt og hefur verið gripið til ráðstafanna til að styrkja símkerfið yfir þennan álagspunkt. Ferðafæri um borgina er ekki gott og því vill Borgarleikhúsið beina því til fólks að sýna biðlund í símanum í stað þess að leggja í ferðalög í miðasöluna.
Gauragangur verður frumsýndur 19. Mars næst komandi, verkið er eftir Ólaf Hauk Símonarson og í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra.
Láttu Orm stytta þér stundir.
