Fréttir

Þrjár af fimm tilnefningum í leiklist til Borgarleikhússins

Listamenn Borgarleikhússins sigursælir þegar tilnefningar voru tilkynntar

8.3.2010

Tilnefningar til Menningarverðlauna DV voru kynntar sl. föstudag, voru listamenn Borgarleikhússins sigursælir í tilnefningum í flokknum Leiklist. Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Benedikt Erlingsson voru tilnefnd fyrir leikverkið Jesús litla. Sigrún Edda Björnsdóttir var tilnefnd fyrir hlutverk sín í Milljarðamærin snýr aftur og Fjölskyldan. Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson og Hallur Ingólfsson fengu þriðju tilnefninguna fyrir leikverk sitt Þú ert hér. Í leiklistarnefndinni eru þau Jón Viðar Jónsson formaður, María Kristjánsdóttir og Elísabet Brekkan, öll starfa þau sem leiklistargagnrýnendur. 
Menningarverðlaun DV verða afhent við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 10. mars. 





Útlit síðu:

Tungumál



Gauragangur

Orðheppnasti unglingur Íslands

Gauragangur-450x236-new-Vignetta
 

Enron

Heitasta leikritið í heiminum í dag

Enron_450x236
 

Harry & Heimir

Enn veltast áhorfendur um af hlátri

Harry og Heimir
 

Horn á höfði

Barnasýning ársins 2010

Horn á höfði
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica