Fréttir

Gauragangur, geisladiskur með tónlistinni kemur í verslanir í dag

Sjóðheitur Gauragangs geisladiskur í dreifingu í dag, fæst í öllum helstu tónlistarverslunum

10.3.2010

Geisladiskur með tónlist Nýdanskrar úr sýningunni Gauragangur kemur í verslanir í dag, miðvikudag. Á disknum syngur einvala hópur leikara fimmtán lög úr sýningunni. Er hann sá rétti, Ský í buxum og Ógleði eru allt þekkt lög úr sýningunni og nýtt lag Vertu með hefur hljómað í útvarpinu síðustu vikurnar í flutningi Nýdönsk og verður það sextánda lagið á geisladisknum. Lagið var samið sérstaklega fyrir þessa uppsetningu verksins. Útgefandi geisladisksins eru 12 Tónar í samvinnu við Borgarleikhúsið. Geisladiskurinn verður til sölu í öllum helstu tónlistarverslunum.

Geisladiskurinn verður á sérstöku frumsýningartilboði í Borgarleikhúsinu til 31. mars. 

Þeir sem kræktu sér í eintak í forsölu geta vitjað disksins í miðasölu okkar frá 11. mars.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica