Jesús litli hreppti Menningarverðlaun DV í leiklist
Bergur Þór, Halldóra og Benedikt fengu verðlaunin fyrir verk sitt Jesús litli
Menningarverðlaun DV voru afhent síðdegis í dag. Í leiklist hlutu leikararnir Bergur Þór Ingólfsson og Halldóra Geirharðsdóttir ásamt Benedikt Erlingssyni, leikstjóra verðlaunin fyrir verk sitt Jesús litli. Borgarleikhúsið óskar þeim innilega til hamingju með verðlaunin.
Leikritið fékk framúrskarandi góðar viðtökur hjá gagnrýnendum og öðrum leikhúsgestum þegar það var sýnt í nóvember og desember síðast liðin. Leikritið kvaddi eftir jólin fyrir troðfullu húsi til að rýma fyrir nýjum verkefnum á Litla sviðinu. Leikhúsáhugafólk sem missti af sýningunni getur glaðst því verkið verður tekið upp fyrir næstu jól.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðals annars: Bergur og Halldóra hafa á undanförnum árum þróað trúðaparið Barböru og Úlfar í ýmsum sýningum. Þau hafa þar kveikt nýjan áhuga á trúðleik hér á landi og skapað honum áður óþekktan sess innan íslensks leikhúss. Þetta starf þeirra hefur sjaldan borið betri ávöxt en í sýningunni Jesú litli undir leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Listamenn Borgarleikhússins voru afar sigursælir í tilnefningum í leiklist því auk þeirra Bergs, Halldóru og Benedikts var Sigrún Edda Björnsdóttir, leikkona, tilnefnd fyrir hlutverk sín í Milljarðamærin snýr aftur og Fjölskyldan. Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson og Hallur Ingólfsson fengu þriðju tilnefninguna fyrir leikverk sitt Þú ert hér.
Í leiklistarnefndinni eru þau Jón Viðar Jónsson formaður, María Kristjánsdóttir og Elísabet Brekkan, öll starfa þau sem leiklistargagnrýnendur.
