Gauragangur frumsýndur í kvöld
Vinsæl saga Ólafs Hauks Símonarsonar á Stóra svið Borgarleikhússins
Gauragangur
eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Tónlistin í verkinu er eftir hljómsveitina Nýdönsk.
Verkið fjallar um menntaskóla strákinn Orm Óðinsson, fjölskyldu hans og vini. Þetta er þroskasaga ungs manns sem er að takast á við fjölskylduna, ástina og skólann. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Ólafs Hauks sem þegar er orðin sígild í íslenskum bókmenntum. Skáldverk Ólafs Hauks hafa snert hjörtu þjóðarinnar með einstökum hætti. Gauragangur er ein vinsælasta unglingabók Íslands og hefur sagan verið þýdd á þrjú tungumál. Eitt af megin einkennum skáldskapar Ólafs Hauks er hvernig hann fjallar um hversdagslíf samtímans og lýsir venjulegu fólki sem er að kljást við sjálft sig og umhverfið. Vandamálin sem Ormur tekst á við eru hversdagleg glíma við lífið og það verkefni að verða fullorðinn. Hana sýnir Ólafur Haukur okkur í verkinu á sinn húmoríska og einstaka hátt.
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri er hér að leikstýra sínu fyrsta verki á Stóra sviðinu og með honum er stór hópur leikara en alls taka þátt í sýningunni 22 leikarar ásamt hljómsveit og tæknifólki.
Leikarar í sýningunni eru: Guðjón Davíð Karlsson sem leikur Orm, Hallgrímur Ólafsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sveppi (Sverrir Þór Sverrisson), Valgerður Guðnadóttir, Birgitta Birgisdóttir, Walter Grímsson, Ellert A Ingimundarson, Vigdís Gunnarsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Jóhann Sigurðarson, Örn Árnason, Pétur Einarsson, Hanna María Karlsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Dóra Jóhannsdóttir.
Hljómsveit: Stefán Már Magnússon, Börkur Hrafn Birgisson, Ingi Björn Ingason, Þorbjörn Sigurðsson, Kristinn Agnarssonar.
Listrænir stjórnendur: höfundur: Ólaf Hauk Símonarson, tónlist eftir Nýdönsk, leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson, leikmynd:Snorri Freyr Hilmarsson, búningar:Filippía Elísdóttir, lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson, tónlistarstjórn:Jón Ólafsson, hljóðmynd: Thorbjoern Knudsen, myndband:Henrik Linnet, hreyfingar/danshöfundur: Margrét Bjarnadóttir, leikgervi: Elín S. Gísladóttir, sýningarstjóri: Ingibjörg E. Bjarnadóttir, aðstoðarleikstjóri: Hlynur Páll Pálsson.
Í tilefni uppsetningarinnar gefa 12 tónar og Borgarleikhúsið út geisladisk með tónlistinni úr sýningunni sem fáanleg er í öllum helstu tónlistarverslunum.
