Hörkustuð á fjölum Borgarleikhússins
Gauragangur fær góð dóma hjá gagnrýnendum.
Það voru góðar móttökur hjá leikhúsgestum á fyrstu sýningum Gauragangs um helgina og ekki síðri eru dómar gagnrýnenda. Verkið fékk fjórar stjörnur bæði hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins og Fréttablaðsins og er leikurum, leikstjóra og tæknifólki hrósað fyrir kraftmikla og skemmtilega sýningu.
Segir Ingibjörg Þórisdóttir í Morgunblaðinu að Gauragangur sé „þéttur og skemmtilegur söngleikur sem höfðar jafn til ungra sem aldinna.“ Og Elísabet Brekkan segir „dúndursýning... Ætti að falla unglingum í geð á hvaða aldri sem er.“ Undir þetta tekur Bryndís Schram í dómi sýnum á pressa.is þar sem hún hvetur fjölskyldur til að sjá sýninguna saman „Þarna er lifandi leikhúsverk á fjölunum, sem pabbi og mamma eiga að grípa glóðvolgt til aða fara með unglingana í leikhús. Það svínvirkar...“
