Fjölskyldan og Harry og Heimir koma aftur á nýju leikár
29.3.2010
Nú um helgina voru síðustu sýningar í bili á Fjölskyldunni og Harry og Heimi – með öðrum morðum. Báðar þessar sýningar voru frumsýndar fyrir áramót en hafa fengið dádæma góðar viðtökur hjá leikhúsgestum. Það er ekki oft sem drama verk eins og Fjölskyldan fer yfir 40 fullar sýningar en sú varð raunin með Fjölskylduna. Viðtökur við þessu frábæra leikverki fóru fram úr björtustu væntingum.Uppselt var á allar sýningar út sýningartímann þrátt fyrir að hann hafi verið lengdur um mánuð og mörgum aukasýningum bætt við. Þrátt fyrir mikla eftirspurn er ekki hægt að bæta við fleiri aukasýningum þetta leikárið þar sem nýjar sýningar þurfa að komast það á Stóra sviðinu. Til að bregðast við hinni miklu eftirspurn hefur verið ákveðið að taka sýninguna upp að nýju á nýju leikári og geta gestir sem komust ekki að núna tryggt sér sæti á verkið í gegnum áskriftarkort næsta leikár. Sömu sögur er að segja með Harry og Heimi sem hefur verið sýnt látlaust frá september.Þeir félagar Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason kvöddu hlutverk sín í Harry og Heimi í gærkveldi eftir sjö mánuði fyrir fullu húsi, en lofa að koma aftur á nýju leikári. Þeir voru búnir að lofa sér í önnur verkefni sem eru komin á fullt og því fá einkaspæjararnir knáu smá frí meðan skaparar þeirra bregða sér í önnur hlutverk. Örn er byrjaður að leika skólastjórann í Gauragangi og Sigurður frumsýndir nýtt verk á Nýja sviðinu nú 10. apríl, Dúfurnar eftir þýska leikskáldið David Gieslemann sem er sprenghlægilegur gamanleikur í anda Klovn þáttanna dönsku og hinna íslensku Fóstbræðra.