Dúfurnar frumsýnt í kvöld á Nýja sviðinu
Verðlaunaleikrit frá einu af áhugaverðustu leikskáldum Þýskalands
Dúfurnar
eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður frumsýnt á Nýja sviðinu í kvöld að viðstöddum höfundinum. Verkið var verðlaunað sem besta nýja gamanleikritið í Þýskalandi á síðasta ári. Það hefst í jólaboði lítils fyrirtækis þar sem forstjórinn leggur á ráðin um eigið hvarf, „Ég vil burt héðan.“ er fyrsta setning verksins sem síðan snýst um hvarf eða ekki-hvarf forstjórans og hvernig það hefur áhrif á líf þeirra persóna sem standa honum næst. Sálfræðingur flækist inn í líf persónanna en hann sjálfur er svo flæktur í eigin vitleysu að hann man ekki nöfn sjúklinga sinna. Leikhópurinn er á sviðinu allan tíman og fléttast því margar sögur saman sem allar tengjast. Um verkið segir höfundurinn „Hvað Dúfurnar varðar þá ákvað ég mjög snemma að ég ætlaði að nota þennan samanfléttaða stíl, þar sem tvær, þrjár eða jafnvel fleiri senur sköruðust, röskuðu og breyttu hver annarri. Mig hafði lengi langað til að semja leikrit af því tagi. Út frá þessari hugmynd kom svo auðvitað þessi tiltölulega mikli fjöldi persóna. Annars væri þessi stíll algerlega tilgangslaus. Þegar ég hafði skrifað nokkur samtöl bættist þessi hugdetta um hvarfið við. Einhver segir skyndilega: „Ég vil burt héðan.“ Afleiðingin varð sú að þetta varð þema verksins: Þegar einhver tilkynnir hvarf sitt getur það ekki verið aukaatriði.“
Verkið er kryddað með hráum gítarleik Vilhelms Anton Jónssonar og söng leikaranna sem hvert um sig taka eitt lag. Átta leikarar taka þátt í sýningunni og eru þau á sviðinu alla sýninguna. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur er sannkallað listaverk þar sem áhorfandanum er boðið til sætis í drifhvítum sal og er búið að tjalda hvítu bæði veggi og loft til að viðhalda kaldri og hvítri stemmingu. Mikill spenningur var strax fyrir verkinu í haust og nú þegar eru uppseldar 18 sýningar.
Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar Stefánsdóttur, lýsing: Þórður Orri Pétursson, tónlist Vilhelm Anton Jónsson.
Leikarar eru: Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Halldór Gylfason, Sigurður Sigurjónsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Nína Dögg Filippusdóttir
