Fréttir

Í dag kl 11 hefst lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis 

Starfsfólk tilbúið í lesturinn og bíður eftir að fá skýrsluna í hendur

12.4.2010

Í dag kl 11 mun starfsfólk Borgarleikhússins hefja lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir bankahrunsins.  Skýrslan verður viðamikil og líklegt er að fjölmiðlar muni túlka skýrsluna hver með sínu nefi. Starfsfólk Borgarleikhússins mun lesa skýrsluna upp í heild sinni, en hún er yfir 2000 blaðsíður að lengd, og bjóða landsmönnum að hlýða á upplesturinn.  Listamenn munu ekki leggja mat á innihaldið né gera tilraun til að túlka skýrsluna með neinum hætti. Lesturinn hefst kl 11.00 og mun standa dag og nótt þar til skýrslan hefur öll verið lesin. Um 45 leikarar munu taka þátt í upplestrinum sem áætlað er að taki 3-5 sólarhringa. Landsmönnum býðst að koma í Borgarleikhúsið og hlýða á skýrsluna að hluta eða í heild. Verður leikhúsið opið allan sólarhringinn meðan á lestrinum stendur en flutningnum verður einnig varpað beint á vef leikhússins. Eins verður skýrslan aðgengileg á DAISY bókarformi jafnóðum á vef Blindrabókasafnsins, www.bbi.is.

Með lestrinum vill starfsfólkið leggja sitt að mörkum til að auðvelda landsmönnum aðgang að skýrslunni. Leikhúsið verður eins konar griðarstaður þar sem fólk getur komið, hlustað á lesturinn og hugleitt efnið, innihaldið og orsakirnar. Borgarleikhúsið kappkostar að eiga í virku samtali við samfélagið og taka á brýnum samfélagsmálum. Frá bankahruni hefur leikhúsið tekið á málefnum líðandi stundar með ýmsum hætti.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica