Fréttir

Lestur  Rannsóknarskýrslu gengur vel í Nýja sviðinu

Fyrsta bindi að baki

13.4.2010

Bergur Þór Ingólfsson við upphaf lesturs

Nú er kominn sólarhringur síðan lestur hófst á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hér í Borgarleikhúsinu. Viðtökur hafa verið með eindæmum góðar. Lesarar eru komnir á blaðsíðu hundrað og þrjátíu í öðru bindi skýrslunnar og gengur lesturinn vel. Það hefur verið stöðugur straumur fólks í leikhúsið síðan lestur hófst og allir afar þakklátir fyrir framtakið. Fólk segir að það sé nauðsynlegt að hafa samastað þar sem hægt er að hlýða á lesturinn íhuga efnið og ekki síst að ræða málin. Það er ljóst að það er þörf á samræðum í  þjóðfélagi okkar um innihald skýrslunnar og hér í Borgarleikhúsinu hefur skapast góður vettvangur til þess.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica