Fréttir
Vigdís Finnbogadóttir

Stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur  

Þú siglir alltaf til sama lands

15.4.2010

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, setur dagskrána kl. 16:30 og í kjölfarið munu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ávarpa afmælisbarnið. Háskóli Íslands, stjórnvöld og Reykjavíkurborg standa að afmælishátíðinni.

Þá tekur við dagskrá í myndum, tali og tónum undir listrænni stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Dagskráin er afmælisgjöf til Vigdísar frá listamönnum og þeim samtökum sem Vigdís hefur unnið hvað mest með. Dagskránni lýkur laust fyrir kl. 18 með ávarpi afmælisbarnsins. 

Heiðrum Vigdísi á þessum merkisdegi hennar með því að fjölmenna á afmælishátíðina.

Nánari upplýsingar á vef Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
www.vigdis.hi.is

Dagskrá (pdf)



Þetta vefsvæði byggir á Eplica