Lesturinn færður fram í forsal vegna leiksýningar kvöldsins
Mikill áhugi fyrir lestrinum
Lestur á Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis gengur vel og eru leikarar komnir í mitt fjórða bindi. Nú um sex leytið var lestaraðstaðan flutt fram í forsal leikhússins svo hægt væri að undirbúa leiksýningu kvöldsins á Nýja sviðinu. Í forsalnum verður góð aðstaða til að hlusta á lesturinn.
Það hefur verið stöðugur straumur fólks í Borgarleikhúsið þessa síðustu daga bæði dag og nótt og ljóst að fólk er þakklátt fyrir framtakið. Heimsóknir á heimasíðu leikhússins hafa ekki síður verið margar því í dag voru komnar yfir 28.000 heimsóknir á síðuna. Þegar sýningu kvöldsins á Dúfunum verður lokið munum við aftur flytja lesturinn inn á Nýja sviðið.
Meginmál
