Fréttir

Lestur sjötta bindis hefst í nótt

Við erum á bls. 260 í fimmta bindi

15.4.2010

Brátt verður lestri á fimmta bindi lokið og við tekur sjötta bindi. Þá eru eftir þrjú bindi af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem við eigum eftir að lesa. Lesturinn gengur mjög vel og  ekkert lát er á heimsóknum, hvorki á vef Borgarleikhússins eða í leikhúsið sjálft. Heitt verður á könnunni í alla nótt og hvetjum við alla til að koma og hlýða á lesturinn og gefa sér stund til að íhuga gildi skýrslunnar. Nú lesa þær Dóra Jóhannsdóttir og Halla Margrét Jóhannesdóttir kafla sautján í bindi fimm.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica