Fréttir
Eilíf óhamingja

Sýning á Eilífri óhamingu fellur niður í kvöld - föstudaginn 15. apríl

Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir föst í Svíþjóð vegna eldgossins

16.4.2010

Sýning á leikritinu Eilíf óhamingja sem átti að vera í kvöld kl. 20 fellur því miður niður þar sem ein leikkonan Sólveig Arnarsdóttir er föst í Svíþjóð. Flugsamgöngur til og frá Evrópu liggja niðri um óákveðinn tíma vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og kemst því Sólveig ekki til landsins fyrir sýningu kvöldsins.

Lifandi leikhús og Borgarleikhúsið harma þau óþægindi sem þessi breyting gæti haft í för með sér fyrir leikhúsgesti, en hvetur þá sem eiga pantaða miða á sýninguna að hafa samband við miðasölu Borgarleikhússins í síma 568 8000.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica