Fréttir

Sigurður Skúlason og Örn Árnason  langt komnir í lestri sjöunda bindis

Erum á blaðsíðu 261 í sjöunda bindi

17.4.2010

Nú er lestur sjöunda bindis langt kominn og hyllir undir lokin á honum. Það hefur verið stöðugur straumur fólks í leikhúsið frá kl. 19 í gærkvöldi þegar lestur á þessu bindi Rannsóknarskýrslunnar hófst. Fólk var búið að bíða eftir að við kæmum að þessum umtalaða hluta skýrslunnar. Eftir áhugasama nótt, þar sem fjöldi gesta var mikill á köflum, lesa þeir Örn Árnason og Sigurður Skúlason nú seinni hluta skýrslunnar. Við hefjum lestur á áttunda bindi í dag og þá má segja að fari að sjá fyrir endann á lestri skýrslunnar.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica