Fréttir

Lestur rannsóknarskýrslu langt kominn

17.4.2010

Nú eru liðnir fimm sólahringar síðan leikarar Borgarleikhússins lásu fyrstu setningarnar í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Áætlað er að um einn sólarhringur sé eftir áður en síðasta orðið verður lesið.

Stöðugur straumur fólks hefur verið í leikhúsið dag og nótt. Tugþúsundur hafa fylgst með útsendingunni hér á heimasíðu leikhússins.

Nú lesa þær Jóhanna Vigdís og Hanna María.

Lesturinn fer fram á Nýja sviði Borgarleikhússins. Milli kl. 17 og 24 í kvöld færist lesturinn yfir í forsal meðan tvær sýningar verða á Dúfunum á Nýja sviði. Að þeim loknum færist lesturinn aftur á sinn stað og lýkur þar í fyrramálið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica