Fréttir

Lestri rannsóknarskýrslu lokið í Borgarleikhúsinu eftir sex sólarhringa lestur

146 klukkustundum síðar voru lokaorðin lesin

18.4.2010

Lestri starfsfólks Borgarleikhússins á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis lauk nú kl. 12.30 eftir 146 klukkustunda samfelldan lestur. Lesturinn hófst um leið og skýrslan kom út og stóð samfellt, dag og nótt, þar til yfir lauk. Landsmenn hafa sýnt framtakinu mikinn áhuga því stöðugur straumur fólks hefur verið í leikhúsið á öllum tímum sólarhringsins. Óhætt er að segja að lesturinn hafi kallað fram margvísleg viðbrögð hjá þeim sem á hlýddu. Um 60.000 manns hafa fylgst með beinni útsendingu á vefnum. Lagt var upp með að túlka textann ekki, heldur gera hann aðgengilegan sem flestum. Skáning lestursins á DAISY bókarform gengur vel á Blindrabókasafninu og verður skýrslan aðgengileg á vef þeirra bbi.is innan tíðar. Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt lestrinum áhuga og hefur umfjöllun um hann birst í fjölmiðlum beggja vegna Atlantshafsins. Allir starfsmenn Borgarleikhússins tóku þátt í lestrinum, dag og nótt í sex sólarhringa. Það er því stoltur og þakklátur hópur starfsfólks sem kveður að lestri loknum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica