Faust á leið til London, sýnt í hinu virta Young Vic leikhúsi í sex vikur
Frumsýnt 1. október í Young Vic leikhúsinu í London
Samningar hafa náðst um leikferð Borgarleikhússins og Vesturports með leikritið Faust í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar til hins virta leikhúss Young Vic í London komandi haust. Frumsýnt verður 1. október og verður sýnt í sex vikur samfleytt. Sýningin verður sýnd sjö sinnum í viku og er því ljóst að 42 sýningar á uppsetningunni verða í boði fyrir erlenda leikhúsgesti. Sýningin verður hluti af afmælisdagskrá Young Vic leikhússins sem fagnar 40 ár afmæli sínu í haust. Leikhússtjóri Young Vic David Lan, leikskáld og leikstjóri, var viðstaddur frumsýningu Faust í janúar sl. Í kjölfarið bauð hann sýningunni að vera 40 ára afmælissýning Young Vic leikhússins. Sýningarhaldið í London er augljóslega mikil viðurkenning fyrir íslenskt leikhúsfólk og aðstandendur sýningarinnar. Uppsetningin á Faust er afar flókin og tæknileg og í raun stórmál að flytja hana á milli leikhúsa. Af þessum sökum er ljóst að sýningum á Faust hérlendis verður að ljúka í vor en gríðarleg aðsókn hefur verið á sýninguna allt frá frumsýningu í byrjun janúar.
Þetta er fimmta sýningin sem Borgarleikhúsið og Vesturport vinna að saman. Fyrri sýningar eru m.a. Rómeó og Júlía, Woyzeck og Kommúnan. Samvinna leikhúsanna hefur borið ríkulegan ávöxt og sýningarnar ferðast víða um heim og hlotið mikið lof.
Faust til London
Faust er ný uppsetning skrifuð af Birni Hlyni, Gísla Erni, Nínu Dögg, Víking og Carl Grose - sem innblásin er af samnefndu leikriti Goethes. Verkið fjallar um Faust sem kominn er á efri ár þegar hann uppgötvar að hamingjan verður ekki höndluð með bóklestri eingöngu. Mefistó freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri hamingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu enda úrkula vonar um að sanna hamingju sé að finna.
Uppsetning Borgarleikhússins og Vesturports hlaut mikið lof gagnrýnenda þegar verkið var frumsýnt í janúar á Stóra sviði Borgarleikhússins og sýnt hefur verið fyrir fullu húsi frá frumsýningu. Sýningum lýkur í vor svo hægt sér að hefja undirbúning fyrir ferðalag til Englands.
Það er mikil viðurkenning að fá boð um að setja verkið upp í hinu virta leikhúsi Young Vic svo ekki sé nefnt hlutverk sýningarinnar í 40 ára afmæli leikhússins.
Það er stór aðgerð að flytja tæknilega flóknar sýningar á milli landa. Tæknifólk Borgarleikhússins er orðið vel æft í að finna lausnir sem henta ólíkum leikhúsum og er þá hvergi gefið eftir í gæðum sýningarinnar. Leikýning eins og Faust þar sem unnið er með allt leikrýmið gerir miklar kröfur til leikmyndahönnuðarins Axels Hallkells Jóhannessonar og tæknifólks Borgarleikhússins. Vel hefur tekist að leysa tæknileg atriði Faust svo sýningin geti blómstrað á sviði Young Vic í októrber og nóvember eins og hún gerir nú á Stóra sviði Borgarleikhúsins.
Gjöfugt samstarf Borgarleikhúss og Vesturport
Samstarf Borgarleikhússins, Gísla Arnar Garðarssonar og félaga hans í Vesturporti hefur borið ríkulegan ávöxt undanfarin ár enda hafa fyrri samstarfssýningar leikhúsanna ferðast víða um heim. Nægir þar að nefna Rómeó og Júlíu, Woyzeck, Ást ogKommúnuna. Hróður Vesturports hefur borist víða um heim enda áferð sýninga hópsins sérstök. Borgarleikhúsið hefur ferðast víða um heim á undanförnum misserum, oft í samstarfi við Vesturport en einnig á eigin vegum.
Vesturport, Borgarleikhús og Young Vic
Samvinnu þessara þriggja leikhús er hægt að rekja aftur til leikgerðrar Vesturports á Rómeó og Júlíu sem sett var svo eftirminnilega á svið í Borgarleikhúsinu árið 2002. Þar heillaði kraftmikill hópurinn ekki bara Íslendinga upp úr skónum heldur fór sýningin út til London og heillaði leikhúsáhugafólk þar ári síðar. Það ævintýri er upphafið að góðri samvinnu leikhúsanna sem skilaði leikhússtjóra Young Vic á frumsýningu Faust nú í janúar sl. Þar sem hann heillaðist að kraftinum í verkinu og frumleika. “Gísli og Vesturport hafa verið stór hluti af Young Vic undanfarin ár. Okkur þykir mikið til þeirra koma og finnst frábært að fá tækifæri til að vinna með þeim. Ekki skemmir heldur fyrir að áhorfendurnir okkar kunna vel að meta sýningarnar þeirra. Við erum því himinlifandi að hafa fengið bæði Vesturport og Borgarleikhúsið til liðs við okkur og Faust verður miðpunkturinn á afmælisdagskránni okkar," segir David Lan leikhússtjóri Young Vic um komu Faust til London.
Nú á vormánuðum gefst fólki aftur tækifæri til að sjá hina rómuðu uppfærslu Vesturports á Rómeó og Júlíu á Stóra sviði Borgarleikhússins. Aðeins örfáar sýningar verða í maí og júní í tengslum við Rómeó og Júlíu hátíð Borgarleikhússins nú í vor.
Young Vic leikhúsið
Young Vic leikhúsið opnaði 11. september 1970 og er það í hópi virtustu leikhúsa í Bretlandi í dag. Leikhúsið opnaði eftir 10 ára meðgöngutíma hugmyndarinnar um leikhús þar sem ungir leikstjórar, hönnuður, tæknimenn og leikarar ættu leikhús fyrir sig. Þær væri hægt að setja á svið klassísk verk í bland við ný leikrit þar sem sæta verð væri á viðráðanlegu verði fyrir sem flesta til að njóta leikhússins. Leikhúsið fagnar því 40 ára afmæli sínu nú í haust. Sýning Borgarleikhússins og Vesturports verður 40 ára afmælissýning leikhússins. Markmið Young Vic er að vera leikhús án stéttarskiptingar þar sem leiklistin ein ræður ríkum og blómstrar fyrir alla. Í dag er Young Vic leikhúsið þekkt sem brautryðjandi leikhús í alþjóðlega leikhúsheiminum þar sem margir af þekktustu leikstjórum og leikurum heims starfa við mismunandi uppsetningar á hverjum tíma.
