Fréttir

Í dag er alþjóðlegi dansdagurinn - í tilefni hans birtum við ávarp frá stjórn FÍLD

Dagurinn er haldinn hátíðlegur viðsvegar um land

29.4.2010

Alþjóðlegi dansdagurinn verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 29. apríl n.k. Listdanssamfélagið mun halda upp á daginn um allt land m.a. með nýrri danssmíðakeppni KORUS sem haldin verður í Loftkastalanum þetta sama kvöld.
Hér er um nýjan og spennandi vettvang að ræða fyrir upprennandi dansara en keppt er í tveimur aldursflokkum, 13-15 ára og 16-20 ára.  Von er á hörkuspennandi keppni en 50 keppendur eru skráðir til leiks frá hinum ýmsu listdansskólum sem starfræktir eru á landinu. Lögð er áhersla á frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugyndaauðgi og dansgleði er í fyrirrúmi.
Markmið Alþjóðlega dansdagsins er að yfirstíga allar pólitískar, menningarlegar og siðfræðilegar hindranir og að færa fólk nær hvert öðru í friði og vináttu með sameiginlegu tungumáli – Dansinum.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan með fjölbreyttum hætti en til hans var stofnað árið 1928 af Alþjóðlegu dansnefnd  ITI/UNESCO. Dagsetningin er til minningar um fæðingardag frakkans Jean-Georges Noverre, sem fæddist árið 1727 og var mikill dansumbótasinni.
Á hverju ári er ávarp velþekktra aðila innan dansheimsins sent um heimsbyggðina. Eftirfarandi eru skilaboð dansdagsins í ár eru samin af Julio Bocca

Vakin er athygli á að á heimasíðu alþjóðlegu leikhúsmálastofnunarinnar  www.iti-worldwide.org <http://www.iti-worldwide.org/>  má sjá birtingu ávarpsins á fjölmörgum tungumálum.   

Bestu kveðjur,
Stjórn FÍLD



Þetta vefsvæði byggir á Eplica