Fréttir
Dufurnar-41

Dúfurnar slá í gegn á Nýja sviðinu

„Ekki hægt að hlægja nóg að þessar sýningu“

3.5.2010

Dufurnar-34„Ég hef aldrei skemmt mér eins vel í leikhúsi“ sagði brosandi leikhúsgestur þegar hann gekk út af sýningunni Dúfurnar á Nýja sviðinu. Sýningin hefur hlotið eindæma góðar viðtökur bæði leikhúsgesta og gagnrýnenda en verkið var frumsýnt 10. apríl sl.Sumir gagnrýnenda eiga ekki nógu sterk orð tilað lýsa hrifningu sinni, aðrir gefa fjórar stjörnur. Leikstjórinn Kristín Eysteinsdóttir hefur fengið mikið hól fyrir verk sitt enda tekst henni ásamt leikurunum að búa til sprenghlægilega sýningu. Leikurinn er hófstilltur í óhófinu sem verkið lýsir og samleikur hópsins mjög góður. Að öllum ólöstuðum þá hefur samleikur þeirra Halldóru Geirharðsdóttur og Hilmis Snæs Guðnasonar fengið mikið lof og sýna þau bæði á sér nýjar hliðar í sýningunni. Silja Aðalsteinsdóttir segir í leikdóm sínum á TMM.is „Það ríkti mikil leikgleði á Nýja sviði … að ég segi ekki sturluð leikvíma,…“ Svo vel fannst henni til takast. Dúfurnar verða á Nýja sviðinu út maí.


Kaupa miða



Þetta vefsvæði byggir á Eplica