Stórkostleg uppsetning OKT leikhússins á Stóra sviðinu
Áhorfendur risu úr sætum í lok sýningar til að hylla hópinn sem leik af lífi og sál fyrir leikhúsgesti
Leikhópur frá OKT Borgarleikhúsinu í Vilnius sýndi á Stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi Rómeó og Júlíu. Hópurinn kom til landsins í samvinnu Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík með verðlauna uppsetningu sína af verki Shakespeare í leikstjórn Oskaras Korsunovas.
Það var mikil leikgleði á Stóra sviðinu í gærkveldi þegar leikhópurinn fór með uppsetningu sína á Rómeó og Júlíu. Uppsetningin einkenndist af miklum húmor og kraftmiklum leik hópsins sem frá fyrstu mínútu heilluðu leikhúsgesti. Má segja að þau léku sér hreinlega að hláturtaugum leikhúsgesta í túlkun sinni á verkinu. Leikurinn var mjög góður og fékk leikhópurinn mikið hrós eftir sýninguna þegar áhorfendur risu úr sætum og hylltu hópinn.
Höfuðættir Verónaborgar eru í þessari uppsetningu gerðir að bakaraættum sem berjast um hver baki bestu brauðin og sætustu kökurnar sem setur sýninguna í nýtt og framandi umhverfi sem gerir hana bara meira spennandi fyrir áhorendann. Önnur sýning og jafnfram sú síðasta verður í kvöld, laugardag.
