Jón Gnarr lætur af störfum sem leikskáld Borgarleikhússins vegna nýrra starfa á sviði borgarmála
Ný störf bíða hans í ráðhúsinu
Leikskáld Borgarleikhússins, Jón Gnarr vann stórsigur í kosningum til borgarstjórnar Reykjavíkur í nýafstöðnum kosningum um síðustu helgi. Ljóst er að ærin verkefni bíða Jóns á sviði borgarmála og nú stefnir allt í að hann taki við sem næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
Af þeim sökum virðist einsýnt að Jón getur ekki áfram sinnt störfum sem leikskáld Borgarleikhússins. Jón og Magnús
Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins hafa því sammælst um að Jón láti af störfum sem leikskáld hússins. “Við samgleðjumst Jóni að sjálfsögðu yfir sögulegum árangri hans og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi um leið og við sjáum eftir honum úr hópi starfsmanna. Hann hefur verið einstaklega skemmtilegur samstarfsmaður. Hins vegar er afar ánægjulegt að allt stefnir í að leikrit Jóns Gnarr fari á fjalir Borgarleikhússins á næsta ári og hlökkum við til að vinna áfram að þróun þeirrar sýningar” segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Jón Gnarr var ráðinn leikskáld Borgarleikhússins í janúar síðastliðinn og hóf hann störf þegar í stað. Hann hefur unnið að ritun leikrits sem stefnt er að því að halda áfram vinnslu á og vonast forsvarsmenn leikhússins til þess að það fari á fjalir Borgarleikhússins á árinu 2011.
Borgarleikhúsið kappkostar að eiga í virku samtali við samtíma sinn og leikhúsið fagnar því að starfsfólk þess láti að sér kveða í samfélagsumræðunni. Starfsfólk Borgarleikhússins óskar Jóni innilega til hamingju með nýjan starfsvettvang og óskar honum velgengni í Ráðhúsi Reykjavíkur.
