Borgarleikhúsið með 4 af 5 sýningum ársins 2010
Sýningar ársins tilnefnd frá Borgarleikhúsinu: Djúpið, Faust, Fjölskyldan og Jesús litli
Tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna Grímunnar 2010 voru opinberaðar við formlega athöfn í Þjóðleikhúskjallaranum síðdegis í dag. Borgarleikhúsið hlýtur flestar tilnefningar þetta árið, alls 34. Þetta eru fleiri tilnefningar en leikhús hefur nokkru sinni hlotið í sögu Grímunnar á einu ári. Þá eru fjórar af fimm sýningum ársins uppsetningar Borgarleikhúss. Þetta eru sýningarnar Fjölsyldan, Faust, Jesús litli og Djúpið. Fimmta sýningin er uppsetning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni. Íslensku leiklistarverðlaunin – Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og afhent í lok hvers leikárs til þeirra sem þótt hafa skarað fram úr á liðnu leikári. Grímuhátíðin verður haldin hátíðleg í áttunda sinn, nú í Þjóðleikhúsinu 16. júní n.k. og verður athöfninni sjónvarpað beint á Stöð 2.
Sjá lista yfir tilnefningar á vef Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar
