Fréttir

Jesús litli er leiksýning ársins og Hilmir Snær leikstjóri ársins

17.6.2010

 

Grímuverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í áttunda sinn í gærkvöldi. Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og afhent í lok hvers leikárs til þeirra listamanna sem þótt hafa skarað fram úr á liðnu leikári. Hátíðin var hin glæsilegasta enda fríður hópur listamanna sem fagnaði í kvöld aðsóknarmesta leikári Íslandssögunnar.

 

Alls voru veittar Grímur í sautján flokkum auk heiðursverðlauna Íslensku leiklistarverðlaunanna og hlaut Árni Tryggvason heiðursverðlaunin í ár fyrir ævistarf sitt í íslenku leikhúsi.

 

Jesús litli hlaut aðalverðlaun kvöldsins þegar sýningin var valin sýningin ársins í íslensku leikhúsi. Að auki kom Gríma í hlut sýningarinnar fyrir leikrit ársins en leikskáld ársins eru þau Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Jesús litla.

 

Önnur aðalverðlaun kvöldsins féllu í skaut Hilmis Snæs Guðnasonar fyrir leikstjórn á leiksýningunni Fjölskyldan. Sýningin var meðal annars tilnefnd sem sýning ársins en önnur verðskulduð verðlaun sem sýningin hlaut í gær voru til Margrétar Helgu Jóhannsdóttur sem Leikkona ársins í aðalhlutverki, Barkar Jónssonar fyrir Leikmynd ársins og Björns Bergsteins Guðmundssonar fyrir Lýsingu ársins.

 

Þá var uppsetning GRAAL á Horn á höfði valin barnasýning ársins en sýningin fer á fjalir Borgarleikhússins í september.

 

Borgarleikhúsið hlaut alls 38 tilnefningar til Grímunnar í ár en það er mun meira en nokkurt leikhús hefur áður hlotið. Þar af átti Borgarleikhúsið fjórar af fimm sýningum ársins, en það er einnig einsdæmi að sama leikhúsið eigi svo margar sýningar í þessum aðalflokki hátíðarinnar. Þær sýningar sem tilnefndar voru sem sýning ársins voru: Jesús litli, Fjölskyldan, Faust, Djúpið, allar í uppsetningu Borgarleikhússins og Íslandsklukkan í uppsetningu Þjóðleikhússins.  Að auki átti Borgarleikhúsið fjórar af fimm áhorfendasýningum ársins, en þær voru: Faust, Fjölskyldan, Gauragangur, Skoppa og Skrítla og 39 þrep í uppsetningu LA.

 

Nánari upplýsingar um Grímuverðlaunin er að finna hér: griman.is

 

Borgarleikhúsið óskar öllum Grímuverðlaunahöfum til hamingju með kvöldið um leið og við hlökkum til næsta leikárs með okkar frábæra listafólki.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica