Uppsetning Borgarleikhússins á Góðum Íslendingum, hlaut mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda á leiklistahátíðinni Ný leikrit frá Evrópu (Neue Stücke aus Europa) sem haldin var í Wiesbaden fyrir skemmstu. Hátíðin er haldin annað hvert ár og þá er boðið tæplega þrjátíu nýjum leikverkum sem þótt hafa skarað fram úr á tímabilinu frá allri Evrópu. Góðir Íslendingar voru valdir sem fulltrúar Íslands af valnefnd hátíðarinnar. Hátíðin hefur verið stökkpallur fjölda þekktra leikskálda í að hassla sér völl utan heimalands síns. Góðir Íslendingar var sýnt ytra dagana 26. og 27. júní og uppselt var á báðar sýningar.Í gagnrýni sinni á verkinu fyrir Wiesbadener Kurier, skrifar Gerd Klee: „Íslendingar eru í miklum vandræðum: Ríkiskassinn er tómur, eldfjall í tryllingskasti spúir ösku yfir allt og þeir lenda í nítjánda sæti í Eurovision... Og sameiginlegt vandamál þeirra er peningaleysi. Eitthvað er rotið í Íslandsveldi. En þrátt fyrir allar þrengingarnar er af sýningunni Góðir Íslendingar ljóst að þeir hafa ekki tapað kímnigáfunni... Góðir Íslendingar er gullinn texti fluttur af gullnum leikhópi”. Ennfremur skrifar Lena Rittmeyer í Newplays svo um verkið: „Góðir Íslendingar lýsir snilldarlega timburmanna- ástandi sem ríkir á Íslandi... styrkur sýningarinnar liggur ekki síst í fáránlegum vangaveltum um aukaatriði og ekki síst í hárbeittum húmor.“Góðir Íslendingar er hugsmíð þeirraHalls Ingólfssonar, Jóns Páls Eyjólfssonar og Jóns Atla Jónassonar. Verkið er hárbeitt ádeilda á íslenskt samfélag og hvernig við glímum við afleiðingar efnahagshrunsins. Sýningin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda hérlendis.