Nýtt rótsterkt og ilmandi leikár
Tjöldin verða dregin frá 20. ágúst n.k.
Nýtt rótsterkt og ilmandi leikár Borgarleikhússins verður afhjúpað þann 20. ágúst næstkomandi. Leikhúsunnendur geta byrjað að hlakka til komandi vetrar, því í boði verða 20 sýningar af öllu tagi, hver annarri áhugaverðari. Við lofum ykkur leikári sem verður heitt og kalt, súrt og sætt, áleitið og leikandi en umfram allt kraftmikið og skemmtilegt.
Leikárið 2010-2011 kemur í kjölfar aðsóknarmesta leikárs í sögu íslensks leikhúss, því gestir Borgarleikhússins í fyrra voru 218.889 talsins, hvorki meira né minna. Þá voru yfirburðir Borgarleikhússins þegar Íslensku leiklistarverðlaunin, Gríman, var afhent með eindæmum. Þar átti Borgarleikhúsið til dæmis fjórar af fimm sýningum ársins sem margar hverjar snúa aftur næsta vetur.
Það er frábært leikár í vændum sem kynnt verður 20. ágúst þegar nýtt Borgarleikhúsblað kemur út. Fylgist með hér á vef Borgarleikhússins og á Fésbókinni.
