Nýtt leikár er hafið!
Tryggðu þér áskriftarkort og vertu með í allan vetur
Nýtt rótsterkt og ilmandi leikár Borgarleikhússins er hafið og opnað hefur verið fyrir kortasölu. Leikhúsunnendur geta hlakkað til komandi vetrar því í boði verða 20 sýningar af öllu tagi, hver annarri áhugaverðari. Við lofum ykkur leikári sem verður heitt og kalt, súrt og sætt, áleitið og leikandi en umfram allt kraftmikið og skemmtilegt.
Hér getur þú kynnt þér allar sýningar leikársins.
Hér getur þú skoðað rafræna útgáfu af Borgarleikhúsblaðinu þar sem verkefni vetrarins eru kynnt rækilega en blaðið var borið út á öll heimili 20. Ágúst.
Hér getur þú nálgast áskriftarkort sem tryggir þér öruggt sæti á fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu.
Leikárið 2010-2011 kemur í kjölfar aðsóknarmesta leikárs í sögu íslensks leikhúss, því gestir Borgarleikhússins í fyrra voru 218.889 talsins, hvorki meira né minna. Þá voru yfirburðir Borgarleikhússins þegar Íslensku leiklistarverðlaunin, Gríman, var afhent með eindæmum. Þar átti Borgarleikhúsið til dæmis fjórar af fimm sýningum ársins sem margar hverjar snúa aftur næsta vetur.
