Fréttir

Orð skulu standa öðlast nýtt líf á sviði Borgarleikhússins

Orð skulu standa verður vikulega á Litla sviði Borgarleikhússins

25.8.2010

Útvarpsþátturinn Orð skulu standa hefur verið einn alvinsælasti útvarpsþáttur þjóðarinnar síðustu átta ár en í honum er íslensk tunga í forgrunni. Nú í síðustu viku var tilkynnt að þátturinn yrði tekinn af dagskrá Ríkisútvarpsins sem lið í niðurskurði stofnunarinnar.  Sterk viðbrögð urðu við ákvörðun stofnunarinnar þar sem fjölmargir lýstu óánægju í ólíkum miðlum með að þátturinn hyrfi af ljósvakanum. Nú hefur verið afráðið að þátturinn gangi í endurnýjun lífdaga á sviði Borgarleikhússins. Um er að ræða nýjung í íslensku leikhúsi þar sem blandað er saman ólíkum formum, útvarpsefni og sviðlist með virkri þátttöku áhorfenda.
 
Grunnur sýningarinnar er hinn geysivinsæli útvarpsþáttur sem áður var í Ríkisútvarpinu – þar sem fram fer fræðandi skemmtun um ýmislegt sem lýtur að íslenskri tungu – en við bætist það sem gott leikhús hefur upp á að bjóða, lifandi tónlist, leikþættir, upplestur og fleira. Stjórnandi „þáttarins“ er sem fyrr Karl Th. Birgisson og með honum liðsstjórarnir Davíð Þór Jónsson og Hlín Agnarsdóttir. Á sviðinu bætist í hópinn hinn sprelllifandi tónlistarstjóri Pálmi Sigurhjartarson, en vel valdir gestir verða breytilegir frá einum þætti til annars. Listrænn stjórnandi er Hilmir Snær Guðnason, en hann hlaut m.a. Grímuverðlaunin sem leikstjóri ársins 2010 fyrir Fjölskylduna.
 
Orð skulu standa verður vikulega á Litla sviði Borgarleikhússins, fyrst 21. september. Miða er hægt að nálgast í miðasölu leikhússins en hægt er að kaupa stakan miða eða kort sem gildir á fjórar sýningar á verkinu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica