Fréttir

Fjölbreytt og glæsilegt leikár framundan

Nýtt leikár kynnt í ágúst

8.7.2011

Starfsfólk Borgarleikhússins nýtur nú verðskuldaðs sumarleyfis eftir glæsilegan leikhúsvetur.  Það hefur verið bjart yfir Borgarleikhúsinu síðustu misserin, aðsókn hefur aldrei verið meiri og fjöldi kortagesta hefur tuttugufaldast á skömmum tíma. Þessar viðtökur eru okkur hvatning til að gera enn betur á næsta leikári.

Í ágúst kynnum við leikárið 2011-2012. Við lofum ykkur leikhúsi sem verður hrífandi, ögrandi, skemmtilegt en umfram allt vandað og gott. Þar eiga allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Sem fyrr  bendum við leikhúsgestum á að besta leiðin til að tryggja sér öruggt sæti er með áskriftarkorti. Nú þegar hafa um 11.000 manns áttað sig á kostum áskriftarkortsins og við bjóðum nýja kortagesti velkomna í hópinn á nýju leikári.

Hið árlega opna hús Borgarleikhússins verður síðan laugardaginn 27. ágúst. Þar fá gestir að skoða leikhúsið og sjá brot af því sem koma skal á leikárinu. Á síðasta ár sóttu um 13.000 gestir leikhúsið heim og nuta skoðunarferða, brota úr fjölbreyttum verkum, börnin mátuðu búninga og fólk skemmti sér yfir uppákomum af ýmsu tagi.

Sjáumst í Borgarleikhúsinu 27. ágúst



Þetta vefsvæði byggir á Eplica