Fréttir

Gói og Ævintýrin: Baunagrasið – frumsýnt á Litla sviðinu laugardaginn 11. febrúar

Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri

7.2.2012

Þann 11. febrúar næstkomandi verður leikritið Baunagrasið frumsýnt á Litla sviðinu. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst komu Eldfærin – nú er það Baunagrasið. Elfærin hlutu tvær tilnefningar til Grímunnar á síðasta ári, sem áhorfendasýning ársins og barnasýning ársins. Gói og Þröstur halda nú áfram að kafa í gömlu ævintýrin og blása í þau nýju lífi á leiksviðinu. Risinn, gamla konan, fallega ríka stelpan, sjálfspilandi harpan, hænan sem verpir gulleggjum og allir þorpsbúarnir mæta til leiks á Litla sviði Borgarleikhússins. Gói leikur Jóa og Þröstur sér um rest.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica