Íslenski dansflokkurinn

ID-16

Mínus 16

Minus 16 er eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin og hefur farið sigurför um heiminn. Minus 16 er glettið og beinskeitt verk sem brýtur niður múra milli flytjenda og áhorfenda og spannar skalann frá Dean Martin til cha-cha-cha, frá techno poppi til hefðbundinnar þjóðlagatónlistar Ísraela.
 
Groβstadsafari eftir Grímuverðlaunahafann Jo Strömgren verður til sýningar sama kvöld. Verkið fékk frábærar viðtökur í fyrra þegar það var sýnt sem hluti af dansveislunni Sinnum Þrír.
 
Uppsetning Minus 16 er styrkt af Aurora velgerðasjóði.

 
id_svanurinn

Svanurinn

Vegna fjölda áskorana verður þetta vinsæla verk sýnt aftur. Svanurinn er rómantískur og fallegur dúett fyrir alla fjölskylduna.
Sýnt alla sunnudaga í nóvember – Tjarnarbíó
 
id_fullkominn

Fullkominn dagur til drauma

Óður til dansins. Fegurð og styrkur hins dansandi líkama undir klassískum tónum Verdis. Anton Lackhy fléttar saman þjóðdansi og nútímadansi á sinn skondna, persónulega og duttlungafulla hátt.

 
id_ferdalag

Ferðalag

Ferðalag á óvenjulegum stað í óhefðbundnu verkefni þar sem frumsýndar verða íslenskar dansmyndir og leikið með listformið.
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica