Litla svið

Daudasyndirnar-ASL

Dauðasyndirnar

Dauðasyndirnar er frjálsleg túlkun á Guðdómlegum gamanleik Dantes, stórkostleg trúðasýning fyrir fullorðna sem fjallar um hinn eilífa vanda manneskjunnar - að lifa. Fjórir trúðar segja sögu Dantes í leit hans að Paradís, en leiðin þangað liggur, illu heilli, í gegnum Helvíti og hreinsunareldinn. Sagan er margbrotin sjálfskoðun sem gefur áhorfandanum færi á að spegla sig í mannlegu eðli og eiginleikum, hlæja, gráta og hrífast.

Dauðasyndirnar verða teknar aftur til sýninga á næsta starfsári.

 
BlaaGullid-450x236-SL

Bláa gullið

Út frá sjónarhorni trúðsins er vatn skoðað á einlægan en trúðslegan hátt. Hvert ætli sé eðli vatns? Hvað er svona merkilegt við það? Hvað er úthaf og hvað er tár, hvað er foss og regn? Hvaðan kemur vatn og hvert fer það? Trúðnum er ekkert óviðkomandi og hann hikar ekki að leggja fram spurningar og vangaveltur um allt milli himins og jarðar.

 
thu_ert_her_lokid

Þú ert hér

Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að fóta sig að nýju. Úr rústunum í kringum sig raða þeir saman bútum af fyrra lífi og reyna að átta sig á því hvar þeir eru staddir, hvað hafi gerst og hvert skuli stefna.

 
eilif_enduromun-SL

Endurómun

Þessi sýning færir okkur innsýn inn í nýjustu kenningar um mannsheilann. Útskýrð verða grunnferli skynjunar, minninga og drauma. Leiksviðið er notað til þess að prófa þessar kenningar á sviðinu sjálfu og í huga áhorfandans.

 
eilifohamingja_5-SL

Eilíf óhamingja

Við erum stödd í óræðu herbergi. Fimm manneskjur eru komnar saman. Ólíkar manneskjur en samt allar tengdar á einhvern hátt. Dr. Matthildur fær þetta fólk til meðferðar. Hún setur skýrar leikreglur og krefst fullkomins heiðarleika, fullkomins gegnsæis. Allt verður að koma fram - það má ekki leyna neinu. Heimurinn fylgist með og vill læra af okkur. Matthildur kemur af stað uppgjöri og það kemst enginn út - fyrr en allt liggur á borðinu!

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica