Eilíf óhamingja
Fyrir þá sem þora að horfa í spegil
Um verkið
Við erum stödd í óræðu herbergi. Fimm manneskjur eru komnar saman. Ólíkar manneskjur en samt allar tengdar á einhvern hátt. Dr. Matthildur fær þetta fólk til meðferðar. Hún setur skýrar leikreglur og krefst fullkomins heiðarleika, fullkomins gegnsæis. Allt verður að koma fram - það má ekki leyna neinu. Heimurinn fylgist með og vill læra af okkur. Matthildur kemur af stað uppgjöri og það kemst enginn út - fyrr en allt liggur á borðinu!
Lifandi leikhús og Borgarleikhúsið kynna Eilífa óhamingju, nýtt íslenskt samtímaverk eftir þá Andra Snæ Magnason og Þorleif Arnarsson
Það er skylda leikhússins að kryfja og rannsaka og það er það sem Andri Snær Magnason og Þorleifur Örn Arnarson hafa verið að gera síðasta árið. Þeir ræddu við fleiri en þúsund Íslendinga, og eftir standa fimm persónur sem lifna við á sviðinu. Óhætt er að segja að útkoman er eitthvað sem ekki má missa af.
Andri og Þorleifur settu einnig upp Eilífa hamingju í Borgarleikhúsinu árið 2007.
Þorleifur Örn Arnarsson var að ljúka námi frá einum helsta leiklistarskóla Þýskalands, Ernst Busch í Berlin. Á síðustu tveimur árum hefur hann leikstýrt sýningum á stórum leiksviðum í Þýskalandi við góðan orðstír, nú síðast með uppsetningu á Clocwork Orange, og hlotið hún mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda.
Andra Snæ Magnason þarf vart að kynna enda löngu landsþekktur fyrir verk sín og hugmyndaauðgi. Andri Snær hlaut hin virtu Kairos verðlaun í Þýskalandi nýlega fyrir framlag sitt til samfélagsumræðu með verkum sínum. Verk hans hafa verið gefin út eða sýnd í 22 löndum og þau hafa hlotið margvíslegar innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar.
Aðstandendur
- Höfundur Þorleifur Arnarsson, Andri Snær Magnason
- Leikstjórn Þorleifur Arnarsson
- Leikmynd Drífa Freyju-Ármannsdóttir
- Búningar Judith Amalía Jóhannsdóttir
- Lýsing Kjartan Þórisson
- Leikarar Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Orri Huginn Ágústsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson
Umsagnir
- "hópnum tókst vel upp með gífurlega góðum og kraftmiklum leik, ágætri sögufléttu og taktfastri uppbyggingu átaka og úrlausna...Höfundar vekja hughrif hjá áhorfendum án þess að mata þá eins og smábörn á einum réttum sannleika eða skoðunum, sem er eitthvað sem mörgum hættir til þegar verið er að fjalla um eins stóra og átakanlega atburði og hrunið." Torfi Frans Ólafsson, Midjan.is
"Þarna er loksins komin fram hugmyndafræðileg skýring á ógæfunni." Bryndís Schram, pressan.is
Úr leikdómun um fyrri sýningu hópsins Eilíf hamingja
„Íslenskt leikhús og íslenskir áhorfendur þurfa ekki að örvænta meðan ungt fólk af þessum kaliber hefur áhuga á því að skoða íslenskan veruleika með aðferðum leiklistarinnar.“
María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið

