Dauðasyndirnar
Guðdómlegur gleðileikur
Um verkið
Dauðasyndirnar er frjálsleg túlkun á Guðdómlegum gamanleik Dantes, stórkostleg trúðasýning fyrir fullorðna sem fjallar um hinn eilífa vanda manneskjunnar - að lifa. Fjórir trúðar segja sögu Dantes í leit hans að Paradís, en leiðin þangað liggur, illu heilli, í gegnum Helvíti og hreinsunareldinn. Sagan er margbrotin sjálfskoðun sem gefur áhorfandanum færi á að spegla sig í mannlegu eðli og eiginleikum, hlæja, gráta og hrífast.
Dauðasyndirnar verða teknar aftur til sýninga á næsta starfsári.
Dauðsyndirnar fékk fádæma góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda á síðasta leikári og var stútuppselt á allar sýningar í vor. Verkið er undirbúinn spuni og því engar tvær sýningar eins. Leiktextinn er eftir hópinn en þó er ekki hægt að útiloka að inn slæðist brot úr heimsbókmenntunum og kunnuglegar tilvitnanir í lifandi og dauða.
"Ég var alveg orðin tvöföld í sætinu af hlátri ..." "... sýningin er dýrleg leikhúsreynsla ..."
S.A. TMM
"Sýningin er bráðfyndin og skemmtileg en með háalvarlegum tóni."
Þ. Morgunblaðið
"Fyrsta flokks." "Ekki missa af Dauðasyndunum."
P. B. B. Fréttablaðið
Aðstandendur
- Höfundur Bergur Þór Ingólfsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Harpa Arnardóttir, Rafael Bionciotto
- Leikstjórn Rafael Bionciotto
- Leikmynd Helga I. Stefánsdóttir
- Búningar Helga I. Stefánsdóttir
- Tónlistarstjórn Kristjana Stefánsdóttir
- Leikarar Bergur Þór Ingólfsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Harpa Arnardóttir
Umsagnir
- „Ég var alveg orðin tvöföld í sætinu af hlátri …" „ … sýningin er dýrleg leikhúsreynsla …"
Silja Aðalsteinsdóttir - Tímarit Máls og menningar (tmm.is)
„Allur frágangur á sýningunni er fyrsta flokks. " „Ekki missa af Dauðasyndunum."
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttabl.
„Sýningin er bráðfyndin og skemmtileg en með háalvarlegum tóni. "
Ingibjörg Þórisdóttir, Morgunblaðið

