Þú ert hér
Hárbeitt sýning um Ísland sem var
Um verkið
Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að fóta sig að nýju. Úr rústunum í kringum sig raða þeir saman bútum af fyrra lífi og reyna að átta sig á því hvar þeir eru staddir, hvað hafi gerst og hvert skuli stefna.
Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd árið 2008 sem svar Borgarleikhússins og Mindgroup við þeim þrengingum sem þjóðin var að ganga gegnum. Hún var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna, m.a. sem sýning ársins.
Nú verður ein aukasýning í tilefni af Keðju - alþjóðlegri sviðslistahátíð í Reykjavík þann 8. október.
Sýningin er flutt á ensku.
Aðstandendur
- Höfundur Hallur Ingólfsson, Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson
- Leikstjórn Hallur Ingólfsson, Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson
- Leikmynd Hallur Ingólfsson, Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson
- Búningar Hallur Ingólfsson, Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson
- Leikarar Hallur Ingólfsson, Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson
Umsagnir
- Í fyrsta skipti, svo ég muni eftir, bregst íslenskt atvinnuleikhús samstundis við atburðum sem eru að gerast í núinu
Þó ekki væri nema vegna þessarar uppreisnar gegn ofríki leikarans í íslensku leikhúsi, sem margir leikmyndateiknarar hefðu glaðir tekið þátt í, þessa lævísa brandara, gæfi ég sýningunni fimm stjörnur, væri ég ekki alfarið á móti stjörnugjöf í samskiptum manna
Jón Atli og Hallur komast líka ótrúlega vel frá hinum ýmsu hlutverkum sínum. Hversdagslegur leikstíllinn, spuna-ramminn, hentar þeim vel og hugvitssamlega lætur leikstjórinn - því það er þarna leikstjóri - þegar mest reynir á kunnáttu leikarans tvo atburði gerast samhliða; mónótónn er brotinn upp af þöglum farsaundirleik.
Húmorinn er oft kolsvartur, svartari en hjá Spaugstofunni, alþýðlegur, eins og hann var framinn á markaðstorgum! Eða eru hirðfíflin mætt á staðinn? Og þar fer Jón Páll, auðvitað, mest á flug.
Ég skemmti mér konunglega, þótt skömm sé frá að segja, og var gripin hræðilegri innilokunarkennd, löngun til að flýja andspænis hryllilegri framtíðarsýninni í lokin.
MK, Morgunblaðið 30.03.09
"Ef eitthvað er áfallahjálp, þá er það þetta leikrit."
"Ég hef ekki hlegið annað eins í lengri tíma ... maður gat ekki hætt."
"Mér þótti þetta alveg óskaplega skemmtileg ádeila."
"Ég hló líka alla leiðina heim til mín ... hitti ofsalega vel í mark."
Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndaleikstjóri
Lostafulli listræninginn, Rúv
"Mér finnst þetta vera mjög vel heppnað ... þeim heppnast að búa til hnitmiðaða sýningu..."
"Þetta var háðsk sýning en hún var líka einlæg."
Bjarni Jónsson, Lostafulli listræningin, Rúv
