Endurómun
Ekki er allt sem sýnist
Um verkið
Þessi sýning færir okkur innsýn inn í nýjustu kenningar um mannsheilann. Útskýrð verða grunnferli skynjunar, minninga og drauma. Leiksviðið er notað til þess að prófa þessar kenningar á sviðinu sjálfu og í huga áhorfandans.
Við notum minimalískar aðferðir til þess að tækla viðfangsefnið þar sem ljós, hljóð og hreyfingar verða settar í jöfnur sem koma til með að hægja á tímanum og beygja skynjun áhorfandans til að sýna fram á að heilinn er ekki eins nákvæmt tæki og við höldum.
Viðvörun: Flogaveiku fólki er ráðlagt frá því að sjá sýninguna vegna notkunar blikkljósa (strope ljósa) í sýningunni sem þekkt er að geti framkallað flog eða aðra vanlíðan hjá flogaveikum.
Aðstandendur
- Höfundur Leifur Þór Þorvaldsson
- Leikstjóri Leifur Þór Þorvaldsson
- Lýsing Leifur Þór Þorvaldsson
- Hljóð Leifur Þór Þorvaldsson
- Dans Bergþóra Einarsdóttir, Laila Tafur
- Leikarar Leifur Þór Þorvaldsson, Bergþóra Einarsdóttir, Laila Tafur

