Rautt brennur fyrir
Óhugnanlega kunnuglegt fólk
Um verkið
María og Kristján eru á yfirborðinu ósköp venjulegt ungt par. Kristján telur sig hafa ráðið leyndardóma mannskepnunnar með kenningum sálfræðinga, en eftir að ókunnugur maður brýst inn hjá honum verður hann að takast á við þá staðreynd að heimurinn er ekki eins einfaldur og hann hélt. Undir sléttu yfirborðinu leynast ógnvænlegir hlutir, fólk er ekki allt eins og það er séð og líf bláókunnugs fólks getur skarast með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Rautt brennur fyrir er feykivel skrifað verk af ungum og djörfum leikhúsmanni, Heiðari Sumarliðasyni. Honum tekst að skapa óhugnanlega kunnuglegan heim með skýrum persónum og kraftmiklum átökum sem eiga sér traustar rætur í samtíma okkar.
„Rautt brennur fyrir“ er gamalt máltæki sem merkir að eitthvað gott sé í vændum.
Heiðar Sumarliðason (1979) stundar nám í leikstjórn í London. Hann útskrifaðist fyrir einu ári úr Fræðum og framkvæmd, nýrri leiklistardeild LHÍ. Þetta er fyrsta sviðsetta leikrit Heiðars.
Aðstandendur
- Höfundur Heiðar Sumarliðason
- Leikstjórn Kristín Eysteinsdóttir
- Leikmynd Finnur Arnar Arnarsson
- Lýsing Magnús Helgi Kristjánsson, Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Tónlist Frank Þórir Hall
- Leikarar Jörundur Ragnarsson, Dóra Jóhannsdóttir, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson
- Búningar Finnur Arnar Arnarsson
Umsagnir
- "Rautt brennur fyrir er athyglisvert verk..
Leikurinn yfir heildina góður og leikararnir vinna býsna vel með efniviðinn...
Fín sýninga á verki sem reyndar er enganveginn gallalaust en hefur hins vegar margt til brunns að bera.
Heiðar Sumarliðason er hér með boðinn velkominn upp á dekk, það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu." Þorgerður Sigurðardóttir, Víðsjá
"Það er margt vel gert í verki Heiðars Sumarliðasonar sem frumflutt var á fimmtudag á Nýja sviði Borgarleikhússins ... þetta er snoturlega sviðsett verk, fallegt í einfaldleika sínum"
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið
"[Leikararnir] greinilega nutu þess að flytja góðan texta og gerðu það af mikilli einlægni ... höfundur kemur sér strax að efninu og þjarmar að okkur miskunnarlaust"
Bryndís Schram, Pressan
"Hlutverk [Jörundar] býður upp á tilfinningalegt striptease sem hann dembir sér út í, ófeiminn og einlægur."
Jón Viðar Jónsson, DV

