Heima er best
Aftur og aftur og aftur... og aftur
Um verkið
Tveir bræður leika sama leikritið aftur og aftur undir ógnarstjórn föður síns. Innan tveggja tíma hafa þrír menn drukkið sex dósir af bjór, borðað slatta af kexi með smurosti og sporðrennt grilluðum kjúklingi með undarlegri blárri sósu. Innan tveggja klukkutíma munu fimm manneskjur týna lífi. Sumsé. Allt eins og það á að vera. Í íbúð feðganna er raunveruleikinn endurskapaður og settur á svið með aðferðum farsans. Grófur ofleikur, eldsnögg búningaskipti og ógnvænlegur hraði. Heima er best er einstakt leikrit sem fær mann til að skellihlæja á meðan hrollurinn hríslast niður hrygginn.
Enda Walsh (1967) er fæddur í Dublin á Írlandi og hafa verk hans verið sviðsett víða um heim. Tvö leikrita hans hafa verið sýnd hérlendis, Disco Pigs og Misterman. Walsh er höfundur hinnar margverðlaunuðu kvikmyndar Hunger frá 2008. Heima er best (Walworth Farce) hlaut afbragðs viðtökur þegar það var frumsýnt í National Theatre í London í fyrra.
Aðstandendur
- Höfundur Enda Walsh
- Þýðing Heiðar Sumarliðason
- Leikstjórn Jón Páll Eyjólfsson
- Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir
- Búningar Ilmur Stefánsdóttir
- Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Tónlist Hallur Ingólfsson
- Leikarar Dóra Jóhannsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Jörundur Ragnarsson, Þröstur Leó Gunnarsson
Umsagnir
- Lostafulli listræninginn, RÚV:
"Jón Páll er frábær leikstjóri... leikmyndin er mjög flott... Leikararnir, hver og einn, fara á kostum... Gói fer á kostum, er góður leikari allan hringinn... Maður tapar sér í sýningunni... leikritið heltekur mann... Leikararnir stóðu sig allir mjög vel, þau brillera öll á sviðinu í mjög krefjandi hlutverkum... Unun að horfa á... Grátt gaman og mikið áreiti í sýningu Borgarleikhússins"
Heima er best [er] í heildina vel unnin sýning, fyndin og áhrifamikil.
Ingibjörg Þórisdóttir, Morgunblaðið
****
Guardian
****
Metro
****
Daily Express
"Leikhúsupplifun sem situr í huga áhorfandans í marga daga eftir sýninguna"
Variety
"Krassandi skemmtilegt"
The New York Times
