Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í vor gefst leikhúsáhugafólki einstak tækifæri til að sjá margverðlaunaða uppfærslu Oskars Korsunovas á þekktustu ástarsögu leikhúsbókmenntanna, Rómeó og Júlíu. Verkið kemur hingað í tengslum við Listahátíð í Reykjavík og verða aðeins tvær sýningar dagana 14. og 15. maí.
Faust er kominn á efri ár þegar hann uppgötvar að hamingjan verður ekki höndluð með lestri bóka eingöngu. Mefistó freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri hamingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu og handsalar veðmálið; finni hann hamingjuna undir handleiðslu Mefistós, þá eignast djöfullinn sál hans. Veðmálið verður þó fyrst tvísýnt þegar Faust kynnist hinni hreinu, saklausu Grétu sem er dregin inn í eilífa baráttu góðs og ills.
María er heillandi ung kona sem bókstaflega elskar lífið og sönginn. Hún finnur sig ekki í klaustrinu og er því send í vist til ekkjumannsins Von Trapp til að gæta sjö hávaðasamra barna hans. María áttar sig fljótlega á því að það sem börnin skortir er ást og hlýju og með söng sínum og glaðværð vinnur hún hug og hjörtu þeirra. Að lokum fellur hinn forskrúfaði Von Trapp einnig fyrir Maríu og málin virðast ætla að fá farsælan endi fyrir alla.