Söngvaseiður

Söngleikurinn sem heimurinn elskar

Um verkið

María er heillandi ung kona sem bókstaflega elskar lífið og sönginn. Hún finnur sig ekki í klaustrinu og er því send í vist til ekkjumannsins Von Trapp til að gæta sjö hávaðasamra barna hans. María áttar sig fljótlega á því að það sem börnin skortir er ást og hlýju og með söng sínum og glaðværð vinnur hún hug og hjörtu þeirra. Að lokum fellur hinn forskrúfaði Von Trapp einnig fyrir Maríu og málin virðast ætla að fá farsælan endi fyrir alla.

Söngvaseiður er einn þekktasti söngleikur allra tíma enda haldast þar í hendur hrífandi tónlist og hjartnæm saga. Verkið var frumflutt í New York árið 1959 og hefur tvisvar verið sett upp í atvinnuleikhúsi hér á landi. Tónlistin er löngu orðin sígild og nægir þar að nefna lög eins og Do re mí og Alparós. Í uppsetningunni er hvergi til sparað, valið hæfileikafólk í öllum hlutverkum og því óhætt að reikna með ógleymanlegri leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna.

 

Söngvseiður er settur upp í samstarfi við VISA.

Umsagnir

  • **** "Mér fannst gaman"
    pbb, Frbl.

    "Og hvað með sýninguna sjálfa? Er líka hægt að mæla með henni?Já, svo sannarlega"

    "Þegar unnið er af jafn góðri fagmennsku og þarna er raunin, af leikurum og músíköntum þá þakkar maður bara fyrir sig."

    "Söngvaseiður er góður endir á vetrinum í Borgarleikhúsinu og á skilið langa lífdaga á sviði þess."
    JVJ DV

    "Þórhallur Sigurðsson leikstjóri hefur einstakt lag á barnasýningum og er Söngvaseiður enn ein fjöður í hattinn hans."

    "Borgarleikhúsið er með stórsýningu í höndunum, vel heppnaða, skemmtilega og afar vel unna."
    IÞ, mbl.

    Silja Aðalsteinsdóttir gagnrýnandi Tímarits Máls og Menningar (TMM) lofar sýninguna hásert og dregur sérstaklega fram Valgerði í hlutverki Maríu, segir börnin vera dásamleg og að Þórhallur Sigurðsson leikstjóri hafi sannarlega átt skilið það standandi uppklapp sem sýningin hlaut á frumsýningu. Dóminn má lesa í heild sinni hér:

    Dómur TMM: http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublication&intPublId=1758

    Í dómi á Pressunni segir m.a.: "Þakið ætlaði að rifna af Borgarleikhúsinu undir kl. 23 í gærkvöldi í nær endalausu uppklappi eftir velheppnaða frumsýningu á söngleiknum Söngvaseiði (e. Sound of Music). Pressan mælir hiklaust með sýningunni og segir hana stórkostlega skemmtun sem komi öllum í gott skap... Leikfélag Reykjavíkur hefur greinilega lagt allt undir í þessari sýningu og uppsker ríkulega. Útkoman er hreint frábær og stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Leikhópurinn er vel samansettur, börnin sem syngja og leika vekja aðdáun fyrir framkomu sína og áhorfendur koma af sýningunni syngjandi kátir, miklu glaðari og bjartsýnni en fyrr. Er hægt að biðja um það betra?“

    Dómur Pressunnar: http://pressan.is/Frettir/Lesafrett/songvaseidur-frumsyndur-i-borgarleikhusinu-storkostleg-skemmtun/

    Í Víðsjá sagði Þorgerður E. Sigurðardóttir: meðal annars:

    "Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri á sannarlega heiður skilinn fyrir Söngvaseið..."
    "virkilega vel unnin og skipað í hvert pláss af vandvirkni..."
    "Það tekst Valgerði með glæsibrag..."
    "valið á börnunum hefur tekist vel, þau eru hörkufínir leikarar og söngvarar..."
    "en það er svo sannarlega vandað til verka"
    "útlitið er stílhreint og fallegt..."
    "Mér þykir vænt um Söngvaseið. "
    "Ég er sátt við þessa sýningu, hún er unnin af væntumþykju og fagmennsku."

Þetta vefsvæði byggir á Eplica